Leiklistarhátíðin Þjóðleikur á Norðurlandi fékk góðar móttökur
Leiklistarhátíðin Þjóðleikur Norðurlandi fór fram í Listagilinu á Akureyri um helgina og tókst með mikilli prýði enda afar hæfileikarík ungmenni af Norðurlandi sem sýndu það sem í þeim bjó á leiklistarsviðinu. Yfirfullt var á velflestar sýningar bæði föstudag og laugardag.
Það var Ingimundur Sigfússon formaður Þjóðleikhúsráðs sem setti hátíðina og Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússstjóri veitti viðurkenningar til hópstjóra hópanna 7 sem tóku þátt en mikil ábyrgð hvíldi á herðum þeirra við uppsetningu og leikstjórn verkanna.
Alls voru sýndar fimmtán sýningar á verkunum Mold eftir Jón Atla Jónasson og Iris eftir þau Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson, en þau mættu sem gestir á hátíðina og voru að eigin sögn mjög ánægð með afraksturinn. Hátíðin er samstillt átak um 150 norðlenskra ungmenna í 7 leikhópum með fjölda stuðningsaðila, svo sem Leikfélag Akureyrar sem hafa gert þetta átak mögulegt.
Gleðin hófst á föstudaginn með skrúðgöngu, þar sem ungmennin gengu fylktu liði frá Rósenborg niður í Listagilið, þar sem hátíðin var sett með formelgum hætti. Á laugardaginn var móttaka á vegum þjóðleikhússins þar sem Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri veitti leikstjórum viðurkenningar fyrir vel unnin störf auk þess sem Vigdís Jakobsdóttir, verkefnisstjóri Þjóðleikhússins og Halla Björk Reynisdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri ávörpuðu samkomuna.
Á laugardagskvöldinu bauð Þjóðleikur uppá pizzuveislu og fljótlega eftir það var blásið til kvöldvöku, þar sem hver hópur bauð upp á skemmtiatriði. Það er óhætt að segja að mikil stemning var í Ketilhúsi á meðan á kvöldvökunni stóð og skemmtu allri sér konunglega.
/Skagafjörður.is