Leikmenn Tindastóls fara hlaðnir viðurkenningum heim af Uppskeruhátíð KKÍ
Uppskeruhátíð KKÍ fór fram nú í hádeginu með breyttu sniði en þó voru verðlaunahafar tímabilsins sem er að ljúka heiðraðir eins og áður. Leikmenn Tindastóls fóru hlaðnir viðurkenningum heim og spurning hvort þurfi að panta bíl frá Vörumiðlun til að sjá um flutninginn.
Pétur Rúnar Birgisson var valinn besti ungi leikmaðurinn í Dominos deild karla, Darrell Keith Lewis var í 5 manna liði ársins en þess má geta að hann hefur verið valinn lið ársins öll þrjú skiptin sem valið hefur farið fram í vetur. Israel Martin var valinn besti þjálfarinn.
Bríet Lilja Sigurðardóttir var í 5 manna liði 1. deildar kvenna en það eru leikmenn, þjálfarar og forráðamenn í hverri deild sem velja.
Þá var einn Skagfirðingur til viðbótar sem fékk viðurkenningu, Hreinn Gunnar Birgisson sem nú leikur með Hetti á Egilsstöðum og mun leika með þeim í Dominos deild karla á næsta tímabili, var í 5 manna liði 1. deildar karla.
Pétur Rúnar valinn í undirbúningshóp fyrir A- landsliðið
Pétur Rúnar Birgisson hefur verið valin í undirbúningshóp fyrir A- landslið Íslands fyrir Smáþjóðaleikana sem fara fram í Reykjavík dagana 1.-6. júní nk. Einnig voru hann og Viðar Ágústsson valdir í undirbúningshóp fyrir U-20 ára landsliðið.
Greint var frá því á Feyki.is í morgun að Pétur Rúnar og Viðar, ásamt sjö öðrum, hafa undirrituðu samning þess efnis að þeir muni leika með Tindastóli í næstu leiktíð.