Leikskóla- og fæðisgjöld verða innheimt í hlutfalli við vistunartíma í verkfalli

Byggðarráð Skagafjarðar hefur ákveðið að leikskóla- og fæðisgjöld þeirra barna sem sannarlega geta ekki nýtt sinn rétt á leikskólanum vegna verkfalla, verði innheimt í hlutfalli við þann vistunartíma sem úthlutað er.

Í fundargerð kemur fram að staða mála vegna boðaðra verkfalla aðildarfélaga BSRB og áhrif á starfsemi sveitarfélagsins hafi verið rædd og þykir ráðinu miður að til verkfalla hafi komið hjá aðildarfélögum BSRB, sem hafi mjög mikil áhrif á meðal annars starfsemi leikskóla, sundlauga og íþróttamannvirkja í Skagafirði.„Verði verkföllin langvinnari en þegar hefur orðið, munu áhrif þeirra einnig koma fram með íþyngjandi hætti fyrir fleiri íbúa eins og boðað hefur verið í útvíkkun verkfalla sem munu hafa áhrif á starfsemi Ráðhúss, þjónustumiðstöðvar og Skagafjarðarveitna, enda um mjög mikilvæg störf að ræða. Mestu áhrifin eru þó án efa takmörkun á starfsemi leikskólanna og þau neikvæðu áhrif sem það hefur á barnafjölskyldur,“ segir í fundargerðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir