Leikskólinn Ásgarður fær annan Grænfána

Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga fær sinn annan grænfána í dag. Fyrri fánann fékk leikskólinn i júní árið 2011 og var þessi mynd tekin við það tilefni.
Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga fær sinn annan grænfána í dag. Fyrri fánann fékk leikskólinn i júní árið 2011 og var þessi mynd tekin við það tilefni.

Í Leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga ríkir mikil gleði og eftirvænting. Sumarhátíð leikskólans er í dag og í ár fær Ásgarður afhentan sinn annan grænfána, sem að sögn Guðrúnar Láru Magnúsdóttur leikskólastjóra gerir hátíðina enn ánægjulegri.

„Til að fá annan fána urðum við að setja okkur fleiri markmið. Markmiðin að þessu sinni tóku mið af starfinu okkar svona dags daglega. En svo viljum við alltaf leggja okkur að mörkum til að gera samfélagið okkar þátttakanda með okkur,“ sagði Guðrún Lára í samtali við Feyki.

Hún segir helstu  markmið skólans að þessu sinni hafa verið að auka hreyfingu nemenda og starfsfólks. „Vinna skólans hefur gengið mjög vel. Við förum alltaf tvisvar i viku í íþróttahúsið, erum dugleg að fara í vettvangsferðir, förum í jóga einu sinni í viku og svo fáum við auðvitað danskennslu eitt tímabil á ári. Svo ekki er hægt að kvarta yfir hreyfingarleysi,“ sagði Guðrún Lára.

Haldinn var umhverfisdagur í samstarfi við Húnaþing vestra. Var þá í fyrsta skipti bíllaus dagur og gekk hann vel. Með slíkum degi er meiningin að hvetja íbúa til að skilja bílinn eftir heima og ganga eða hjóla til vinnu og hvetja þar með íbúa til aukinnar hreyfingar og vekja fólk til umhugsunar um umhverfið og áhrif útblástur bíla. Var þátttaka vonum framar og vonast eftir að hún verði enn meiri í sveitarfélaginu öllu á næsta ári. „Þeir sem koma lengra að geta lagt bílum sínum við félagsheimilið og gengið þaðan. Einnig má draga úr umferð bíla með því að sameinast í bíla.

Leikskólinn leggur einnig mikla áherslu á að stuðla að hollu og góðu mataræði. „Við vinnum eftir markmiðum Manneldisráðs Íslands. Höfum okkar litla matjurtagarð og kennum nemendum að bera virðingu fyrir matvælum og umhverfinu,“ segir Guðrún Lára.

„Síðast en ekki síst erum við með Sólblómabarna verkefni SOS barnaþorps. Nemendur, foreldra og starfsfólk hjálpast að við að safna pening fyrir hana Fiorellu okkar. Með því að eiga Sólblómabarn fá nemendur fræðslu um ólíka menningarheima, fá að sjá myndir og fleira tengt barninu. Það er gaman að sjá hvað náungakærleikurinn skín skært þegar farið er yfir ólíka menningarheima. Hvað er það sem við þurfum nauðsynlega og hvað er það sem við getum gert til að aðrir geti notið með okkur,“ segir Guðrún Lára ennfremur.

Hún segir alla þessa vinnu Ásgarðs vera spurningu um viðhorf. „Hvaða viðhorf viljum að nemendur fari út í lífið með til náttúrunnar, umhverfisins , náungans og síðast en ekki síst til síns sjálfs. Einhversstaðar er sagt „Lengi býr að fyrstu gerð“ og á það svo sannarlega vel við okkar starf. Það er okkar trú að ef nemendur læra það frá upphafi að bera virðingu fyrir sjálfum sér, umhverfinu og náunganum þá kemur það til með að fylgja þeim út lífið,“ sagði Guðrún Lára Magnúsdóttir, leikskólastjóri Ásgarðs á Hvammstanga, að lokum.

 Umhverfissáttmáli Ásgarðs: 

Leikskólinn Ásgarður hefur tekið þá stefnu að vinna markvisst að því að nemendur, starfsfólk og skólasamfélagið í heild tileinki sér þá hugsun að vera ábyrgur gagnvart umhverfi og náttúru.

Fleiri fréttir