Leikskólinn Tröllaborg fær SMT sjálfstæði
Innleiðing á SMT skólafærni hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið í leikskólum í Skagafirði og var leikskólinn Tröllaborg sá fyrsti til þess að öðlast sjálfstæði. „Í tilefni af því var haldin SMT hátíð í skólanum þar sem börnin sungu og dönsuðu, sýndu gestum SMT reglur og boðið var upp á SMT köku í tilefni dagsins,“ segir í fréttatilkynningu.
SMT-skólafærni er útfærsla á bandarísku aðferðinni Positive Behavior Support/PBS. SMT er hliðstæð aðferð og PMTO-foreldrafærni (Parent Management Training-Oregon) þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda með því að kenna og þjálfa félagsfærni, umbuna fyrir æskilega hegðun og samræma vinnubrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun.
Selma Barðdal, sem stýrt hefur verkefninu af hálfu Fjölskylduþjónustu Skagafjarðar, afhenti leikskólanum SMT fánann sem dreginn verður að húni við gott tækifæri.
Fleiri myndir frá hátíðinni má finna á vef leikskólans.