Leikur Vals og Tindastóls sýndur í Króksbíói

Uppselt er á þriðja leik úrslita Subway deildar karla milli Vals og Tindastóls sem fram fer á morgun í Origo-höllinni á Hlíðarenda. Af þeim sökum munu KKÍ kort ekki gilda á leikstað og ekki er lengur hægt að sækja miða á KKÍ kort í Stubb. Þeir aðilar sem þegar höfðu sótt sér miða í gegnum KKÍ kortin eiga gildan miða og geta notað hann á leikstað á morgun.

En fyrir það norðanfólk sem ekki kemst suður á leikinn verður hann sýndur á risaskjánum í Króksbíói. „Þetta gerist hreinlega ekki betra! Aðeins 100 sæti í boði - tryggðu þér sæti með því að skrá þig hér fyrir neðan.... Að sjálfsögðu verður hægt að kaupa popp og með því í sjoppunni. ÁFRAM TINDASTÓLL!!!“ segir í færslu á Facebooksíðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls þar sem skráning fer fram. Sjá HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir