Leita upplýsinga vegna mannlausrar bifreiðar

Lögreglan á Sauðárkróki fékk tilkynningu frá mokstursmönnum Vegagerðarinnar snemma í morgun um að þeir hefðu komið að mannlausri bifreið fastri og í gangi á Þverárfjallsvegi en heiðin var lokuð vegna ófærðar. Í ljós hefur komið að bifreiðinni hafði verið stolið í nótt frá Sauðárkróki.

Fimm björgunarsveitir úr Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði hafa verið kallaðar út til leitar að ökumanni og hugsanlegum farþegum bifreiðarinnar þar sem ekki er vitað hvort þeir séu í hættu á heiðinni eða hafi fengið far til byggða.

Lögreglan á Sauðárkróki óskar eftir upplýsingum ef einhverjir vegfarendur hafi komið fólki til aðstoðar í nótt eða morgun eða öllum öðrum upplýsingum kunna að skipta máli við leitina að rannsókn málsins í síma 893-0709 eða 112.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir