Leitað að manni er féll í Hjaltadalsá

Leit stendur yfir að manni er féll út í Hjaltadalsá í Skagafirði fyrr í dag. Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns var viðkomandi ásamt öðrum manni við ána er óhappið átti sér stað. Björgunarsveitir í Skagafirði voru strax kallaðar út og þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig komin á svæðið til að aðstoða við leit. Mikið er í ánni og mikill straumur, að sögn Stefáns.

Fleiri fréttir