Leitað lærlinga í þjálfaraprógram
Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur áhuga á að setja upp sérstakt þjálfaraprógram fyrir körfuboltaþjálfara. Þetta er gert í samstarfi við yfirþjálfarann Borce Ilievski og verður byggt á lærlingsstöðum til að byrja með, en gætu svo leitt til framtíðarþjálfarastarfa.
Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að verkefnið gangi út á það að þeir sem hafi áhuga geti ráðið sig í sérstakar ólaunaðar lærlingastöður. Viðkomandi fengi allt það sem tilheyrir þjálfarastarfinu, auk þess sem útlagður kostnaður yrði greiddur, t.d. í kring um keppnisferðir.
Lærlingarnir fengju leiðsögn í körfuknattleiksþjálfun og tækju þátt í starfi deildarinnar. Einnig myndu þeir taka þátt í þjálfarafundum og njóta þar leiðsagnar yfirþjálfara, eins og aðrir þjálfarar.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Karl Jónsson, í síma 844 2461, eða á netfanginu coachkarl@internet.is.