Leitinni frestað
feykir.is
Skagafjörður
08.02.2014
kl. 14.01
Eins og greint var frá hér á vefnum fyrr í dag fannst mannlaus bifreið í gangi á Laxárdalsheiði í morgun. Engin merki um fólk í vanda eru á Laxárdalsheiði og leitinni að týnda ökumanninum og hugsanlegum farþegum hefur því verið frestað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Þessi ákvörðun var tekin eftir stöðufund með lögreglu. Umrædd bifreið, sem var í gangi og fannst mannlaus og föst á heiðinni fannst af starfsmönnum Vegagerðarinnar sem voru að ryðja heiðina vegna ófærðar.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu var hún tilkynnt stolin klukkan sjö í morgun en henni var líkast til stolið í nótt. Um hálftíma síðar fundu starfsmenn Vegagerðarinnar bílinn.