Leituðu fleiri ísbjarna

Þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi skammt frá Drangey. Mynd: Alfreð Gestur Símonarson.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi skammt frá Drangey. Mynd: Alfreð Gestur Símonarson.

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í leitarleiðangur yfir Norðurlandi í dag, til að ganga úr skugga um að ekki væru fleiri ísbirnir á svæðinu, eftir ísbjörn gekk á land við Hvalnes á Skaga í gær. Að sögn vaktmanns hjá Landhelgisgæslunni sást ekki til ísbjarna við leitina.

Samkvæmt upplýsingum vaktmannsins var þyrlunni flogið frá Skagaströnd og norður fyrir Skaga og síðan í suðurátt að Sauðárkróki. Fór þyrlan af stað um hádegi en ekki varð vart við ísbjörn á svæðinu. Þyrlunni var því flogið aftur til Reykjavíkur og telst leitinni lokið.

Fleiri fréttir