Lemon opnar á Sauðárkróki – Sólskin í glasi og sælkerasamlokur

Sjötti Lemon staðurinn mun opna í byrjun árs 2021 á Sauðárkróki. Um er að ræða sérleyfisstað sem rekinn verður af hjónunum Stefáni Jónssyni og Hasna Boucham. Mikil eftirspurn er eftir slíkum veitingastað á Sauðárkróki. „Fólkið hér hugsar um heilsuna og vill hollan og góða skyndibita,“ segir Stefán.  Veitingastaðurinn verður að Aðalgötu 20b en einnig verður í húsnæðinu að finna Escape room sem og Sport bar. 

Lemon opnaði fyrsta samloku- og djússtaðinn í mars 2013 og hefur vaxið jafnt og þétt síðan þá. Nú eru þrír staðir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandsbraut 4, Hjallahrauni 13 í Hafnarfirði og í Salalaug Kópavoginni. Tveir staðir eru á Akureyri, Ráðhústorgi og Glerárgötu og einn staður er á Húsavík að Héðinsbraut. Sjötti staðurinn verður svo opnaður með pomp og prakt á Sauðárkróki í byrjun árs 2021.

„Við erum virkilega spennt fyrir opnun Lemon á Sauðárkróki. Það verður boðið upp á sömu áherslur á nýja staðnum, sælkerasamlokur og ferskustu djúsa landsins, einstakt andrúmsloft og stemningu,“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttir, einn eigenda Lemon.

Veitingastaðurinn Lemon hefur notið mikilla vinsælda á meðal landsmanna, en staðurinn sérhæfir sig í samlokum og ferskum söfum.  „Samlokurnar og djúsarnir hafa verið aðalsmerki okkar en það er einnig hægt að fá vefjur, salöt, hafragraut, orkuskot og kaffi hjá okkur,“ segir Jóhanna Soffía Birgisdóttir, einn eigenda Lemon.

„Það er okkur mikill heiður að fá að bæta í á landsbyggðinni og vonum að staðirnir verða enn fleiri á næsta ári,“ segir Unnur.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir