Lestrarhestar úr Skagafirði
Iðnhönnuðurinn Katrín Ólína Pétursdóttir frumsýnir al-íslenska húsgagnalínu í tilefni af HönnunarMars, þar á meðal svokallaða U-beygju úr Skagafirði unnin í samstarfi við málmiðjuna Stuðlaberg á Hofsósi. Greint er frá þessu á Fréttatímanum.is.
„Fyrir rúmu ári heimsótti ég Stuðlaberg og sá þar vél sem notuð var til að beygja rör í púst fyrir bíla á árum áður. Í kjölfarið fór ég að kanna möguleika á samstarfi og hafði í huga þróun einfaldra húsgagna sem ég hafði gert prótótýpur af 2 árum fyrr,“ segir Katrín í samtali við Fréttatímann, og á daginn kom að röravélin hentaði fullkomlega fyrir boga sem hún hafði þá þegar gert tilraunir með.
Húsgögnin, svokallaðir Lestrarhestar, spruttu svo upp úr samstarfinu sem hverfist um þennan boga, eða U-beygju eins og Katrín kallar hana og sem tekin er með púströravélinni góðu.
„Samstarfið við Gunnlaug í Stuðlabergi, sem hefur tileinkað líf sitt málmum og vinnslu með þá, hefur verið gefandi og skemmtilegt. Með þessa hugmynd um breyttar áherslur og svæðabundna framleiðslu að leiðarljósi finnst mér áhugavert að ýta undir samstarf hönnuðar og smáiðnaðarfyrirtækis. Í stað þess að málmiðjan sé í verktakahlutverki við þessa framleiðslu er hugmyndin sú að hönnuðurinn og iðjan byggi upp í sameiningu.“
Katrín er menntaður iðnhönnuður frá París og er einna þekktust fyrir ævintýralegan myndheim sem flætt hefur um rými á borð við Listasafn Reykjavíkur og Cristalbar í Hong Kong. Katrín hefur starfað sjálfstætt að hönnun sinni hér heima og erlendis um árabil og vinnur nú að því að útfæra myndheim sinn með tækni 3D-prentunar við rannsóknarsetur Aalto háskólans í Helsinki.
Gömul vél endurræst í nýjum tilgangi
Framleiðsla Lestrarhesta Katrínar er líkt við „Beint frá býli“ hugmyndafræðina þar sem lítil svæðisbundin framleiðsla verður til úr því sem er þegar til staðar og er svo seld milliliðalaust til neytandans. Katrín segir sjálfa framleiðsluaðferðina, og þau tæki og þekkingu sem til staðar er, hafa verið einn meginhvata verkefnisins.
„Í þessu felst að setja saman á nýjan máta, blanda saman og búa til nýtt samhengi. Í stað þess að líta á gamla vél sem ekki hefur verið í notkun í mörg ár sem úrelt tæki er hún tekin í endurmat og endurræst í nýjum tilgangi. Þannig getur lítil framleiðsla orðið til og gamlir hlutir gengið í endurnýjun lífdaga.“
Hægt er að nálgast vörurnar hjá Stuðlabergi eða hjá info@katrin-olina.com.