Leyfi veitt til töku kalkþörunga í Miðfirði
Á fundi byggðaráðs Húnaþings vestra sl. mánudag var greint frá því að Orkustofnun hefði gefið út leyfi til handa Icecal ehf. til töku kalkþörungasets, allt að 1200 rúmmetra á ári, af hafsbotni í vestanverðum Miðfirði við Húnaflóa. Gildir leyfið í 30 ár.
Með bréfi dags 25. maí 2015 óskaði Orkustofnun eftir umsögn Húnaþings vestra. Á 874. fundi byggðarráðs var samþykkt að senda inn umsögn með athugasemdum til Orkustofnunar þar sem óskað var eftir að málið færi í umhverfismat.
Þann 19. janúar sl. var síðan send kæra til úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála þar sem Húnaþing vestra kærir þá ákvörðun Skipulagsstofnunar að ekki þurfi að fara fram umhverfismat á umræddri kalkþörungavinnslu. Fulltrúar Icecal ehf mættu á 904. fund og skýrðu hugmyndir sínar um uppbyggingu á starfsemi og vinnslu kalkþörunga.
Byggðarráð leggur áherslu á að við kalkþörungavinnsluna verði tekið tillit til annarrar starfsemi á svæðinu svo og laxagengdar, og vonast til að fullvinnsla afurðarinnar verði unnin í Húnaþingi vestra.