Liðstjóri Top Reiter/Syðra Skörðugils tekinn tali
Elvar E. Einarsson er liðsstjóri Top Reiter/Syðra Skörðugil liðsins í KS-Deildinni. Hann valdi með sér Tryggva Björnsson í sitt lið og eftir úrtöku dróst með þeim Baldvin Ari Guðlaugsson. Svala Guðmundsdóttir tók meðfylgjandi viðtal fyrir vefinn Isibless.is og er það birt hér með góðfúslegu leyfi hennar.
Hvernig líst þér á nýja fyrirkomulagið í deildinni, þ.e liðakeppni?
-Mjög vel. Held að þetta verði mjög skemmtilegt fyrirkomulag. Það er alltaf öðruvísi stemming sem myndast þegar lið eru að keppa saman heldur en einstaklingskeppni. Menn hjálpast að og peppa hvorn annann upp.
Þú valdir Tryggva Björnsson með þér í lið, hver var ástæðan fyrir því vali?
-Tryggvi er góður vinur minn og félagi. Húmoristi sem skemmtilegt er að vera í kringum. Hann er MIKILL keppnismaður, hrikalega tapsár enn heldur með sínu liði !! Við vorum síðan svo heppnir að fá Baldvin Ara með okkur í lið sem er einnig mikill keppnismaður og reynslubolti.
Hvernig er hestakostur þinn fyrir deildina í vetur?
-Ég fæ nú líklega Djásn frá Hnjúki lánaða í fimmganginn að vanda enda Bjarni góður vinur minn og MJÖG greiðugur. Tryggvi er nú líka að bjóðast til að lána mér Braga frá Kópavogi í töltið. Ætli ég skrölti svo ekki á einhverju góðu í Fjórganginum. Nágranni minn á Halldórsstöðum ætlar síðan að lána mér skeiðhestinn sinn hann Segul.
Hvaða grein telur þú vera þína sterkustu í vetur?
-Ég myndi segja klárlega slaktaumatölt ! Erum allir mjög góðir í því .
Hvernig heldur þú að liðinu þínu eigi eftir að ganga?
-Mjög vel ekki spurning. Við erum allir miklir keppnismenn og höfum klárlega samanlagt mestu reynsluna enda meðalaldur liðsins sá hæsti í KS deildinni. Síðan erum við svo vel dressaðir í fötum frá Top Reiter það er annað en þetta Austurríska Weierholz lið hans Bjarna Jónasar sem hann segir vera svo fallegt en við vitum að fötin skapa manninn.
Hver er besti hestur sem þú hefur komið á bak?
-Það verður örugglega Bragi frá Kópavogi.
Hvað færðu þér vanalega í morgunmat?
-Lýsi, Lífskrafturinn hans pabba og súrmjólk.