Lífið í jafnvægi
feykir.is
Skagafjörður
26.02.2015
kl. 10.57
Á laugardaginn kl. 9:30-12:30 verður haldið námskeið í Kundalini jóga, hugleiðslu og gong slökun á sal FNV á Sauðárkróki. Kenndar verða leiðir til að takast á við streitu og endurnærast. Kennari á námskeiðinu er Guðrún Darshan.
Kynning á kennaranámi í Kundalini jóga hefst svo klukkan 13 á sama stað, sama dag. Námið hefst næsta haust. Nánari upplýsingar um námskeiðið og námið fast hjá Guðrúnu í síma 896 2396 og gegnum netfangið andartak@andartak.is.