Lífleg uppskeruhátíð hjá yngri flokkum Tindastóls

Uppskeruhátíð yngri flokka Tindastóls í knattspyrnu fór fram í gær á Mælifelli. Vel var mætt af áhugasömum iðkendum sem sporðrenndu ótal flatbökum og drukku ómengað ropvatn meðan horft var á myndband sem Stefán Arnar vann um sigurgöngu meistaraflokksins í sumar.

 

Hópnum var skipt í tvennt þar sem yngri hópurinn 7. - 5. flokkur mætti kl. 17.00 og eldri hópurinn (3. og 4. flokkur) mættu svo kl. 19.00 þar sem einnig voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í sumar.

 

4. flokkur karla.

  • Besta ástundun / mestu framfarir:          Bjarni Páll Ingvarsson
  • Efnilegasti leikmaður:                              Pálmi Þórsson
  • Mikilvægasti leikmaðurinn:                     Ágúst Friðjónsson

 

4. flokkur kvenna:

  • Besta ástundun / mestu framfarir:          Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir
  • Efnilegasti leikmaður:                              Hugrún Pálsdóttir
  • Mikilvægasti leikmaðurinn:                     Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir

 

3. flokkur karla:

  • Besta ástundun / mestu framfarir:          Sighvatur Rúnar Pálsson
  • Efnilegasti leikmaður:                              Pétur Rúnar Birgisson
  • Mikilvægasti leikmaðurinn:                     Konráð Freyr Sigurðsson

 

3. flokkur kvenna:

  • Besta ástundun / mestu framfarir:          Bríet Guðmundsdóttir
  • Efnilegasti leikmaður:                              Bryndís Rut Haraldsdóttir
  • Mikilvægasti leikmaðurinn:                     Helga Þórsdóttir

Fleiri fréttir