Líflegt á höfninni í dag
Það er mikið um að vera við Sauðárkrókshöfnina þessa stundina en þar liggja nú þrír togarar, rækjuveiðiskip og flutningaskip og unnið er hröðum höndum við að landa og þjónusta þau á sem bestan hátt.
Flutningaskipið Laxfoss kom í gær með um 2000 tonn af svokölluðum Skeljungsáburði sem Eymundur bóndi og athafnamaður frá Bændaþjónustunni í Saurbæ höndlar með.
Örvar HU-2 landar nú þorski sem fer í vinnslu hjá Fisk Seafood og Málmeyjan kom með um 15 þúsund kassa af frystum fiskafurðum, mest ufsa eða um 5800 kassa, 4100 kassa af karfa, 2700 ks af þorski, 1600 af ýsu og smotterí af öðru.
Í morgun kom Klakkur að landi með sinn mesta rækjufarm á árinu eða um 35 tonn og Grímsnesið úr Grindavík kom með 107 kör eða um 20 tonn af rækju. Rækjuna sækja bátarnir norður af landinu og fer hún í vinnslu hjá rækjuvinnslunni Dögun á Sauðárkróki.