Líflegur sjómannadagur á Hofsósi

Það var kuldalegt um að litast þegar dagskrá sjómannadagsins hófst á Hofsósi s.l. sunnudag með helgistund við minnisvarðann um látna sjómenn. Hitamælirinn steig ekki hátt og átti það eflaust sinn þátt í að mun færra fólk lét sjá sig á bryggjunni en mörg undanfarin ár. Sem fyrr var það Björgunarsveitin Grettir sem sá um skemmtilega dagskrá í Kvosinni.

Þrátt fyrir kuldann létu krakkarnir sig hafa það að kasta öngli í sjóinn í dorgveiðikeppninni sem reyndar tók skamman tíma vegna kuldans og verður að segjast eins og er að aflinn var mjög dræmur. Þar á eftir var reynt með sér í kararóðri, koddaslag og stakkasundi og voru þau allra hörðustu sem tóku þátt enda ekki fyrir neinar kuldaskræfur að svamla í köldum sjónum.

Eftir skemmtisiglingu var Slysavarnarfélagið Harpa með kaffisölu í Höfðaborg en þangað kom fjöldi fólks og nutu góðra veitinga. Þar fór fram verðlaunaafhending fyrir keppnisgreinarnar en einnig voru aldraðir sjómenn heiðraðir fyrir sín störf en það voru þeir Jón Guðmundsson og Hjalti Gíslason sem lengi voru til sjós og réru lengst af frá Hofsósi.

Björgunarsveitin hefur oft notið góðs af starfsemi og fjáröflunum  Hörpunnar og var sú raunin að þessu sinni þar sem Harpan afhenti Gretti fjölnota skanna að gjöf sem kemur sér vel fyrir sveitina. Hofsósingar eiga gott félagsheimili með stóru og góðu sviði, sem kom sér afskaplega vel að þessu sinni þar sem tveimur uppblásnum hoppuköstulum var komið þar fyrir börnunum til mikillar gleði sem hoppuðu úr sér allan hroll ef einhver var.

Fleiri fréttir