Lífsdans Geirmundar í Hofi
Söngdagskráin "Lífsdans Geirmundar Valtýssonar" verður flutt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á sumardaginn fyrsta, 25. apríl nk. kl. 20.30 og er það í sjöunda sinn sem kór og hljómsveit munu flytja dagskrána. Í tilkynningu frá kórnum segir að þetta verði síðasti flutningur á verkefninu, í það minnsta að sinni.
-Kór og hljómsveit þakkar frábærar viðtökur og hvetur þá sem misst hafa af fyrri tónleikum að drífa sig í Menningarhúsið Hof og fagna sumri með því að njóta laga Geirmundar Valtýssonar í flutningi Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og Hljómsveitar Skarphéðins H Einarssonar.
HÉR má sjá myndbrot af flutningi kórsins í Miðgarði 10. mars sl.