Lífsins gæði og gleði 2014

Ákveðið hefur verið að halda atvinnu-, mannlífs- og menningarsýningu í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki 26. og 27. apríl næstkomandi. Sýningin verður með sama sniði og fyrri sýningar árin 2010 og 2012.

Samhliða sýningunni munu fara fram málstofur um fjölbreytt málefni, auk þess sem boðið verður upp á skemmtiatriði á sviði. Sæluvika Skagfirðinga 2014 verður formlega sett á sýningunni sunnudaginn 27. apríl.

Sýningin verður opin á laugardegi frá kl. 10-17 og sunnudegi frá kl. 10-16. Aðgangur að sýningunni verður ókeypis. Nánari upplýsingar verða birtar á næstu dögum á vefsíðu sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir