Lífsins skák komin út

Út er komin bókin Lífsins skák, sem inniheldur minningar Önnu P. Þórðardóttur á Sauðárkróki. „Mig langar að til að segja sögu mína sem er að mörgu leyti all sérstæð,“ er haft eftir Önnu sjálfri á bókarkápu. Auk minninga Önnu segja nokkrir samferðamenn frá kynnum sínum af henni í sérstökum bókarköflum.

Anna, sem fagnaði áttatíu ár afmæli sínu síðast liðið vor, hefur unnið að ritun bókarinnar og notið til þess aðstoðar Þóru Kristjánsdóttur og Ingibjargar Hafstað, auk þess sem Kristmundur Bjarnason hvatti hana mjög til að færa sögu sína í letur.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar taka Anna og aðrir sem að útgáfunni standa á móti gestum í sal Dvalaheimilis aldraðra á Sauðárkróki í dag, föstudaginn 21. ágúst, kl. 16-18.

Þar verða fyrstu eintök bókarinnar til sölu og kostar hún 3.500 krónur. Bókin verður síðan til sölu hjá Önnu Þórðardóttur í síma 892 4619, Þóru Kristjánsdóttur í síma 453 5405 og Ingibjörgu Hafstað í síma 453 5531.

Fleiri fréttir