Lillukórinn í 20 ár

Afmælistónleikar Lillukórsins í Húnaþingi vestra verða þriðjudaginn 1. maí  kl. 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Kórstjóri og raddkennari er Ingibjörg Pálsdóttir. Sigurður Helgi Oddsson er stjórnandi kórsins og leikur jafnframt undir á píanó, einnig mun Þorvaldur Pálsson leika undir á harmonikku.

Gestakór verður Álafosskórinn. Stjórnandi hans er Magnús Kjartansson og undirleikari Sigurður Helgi Oddsson. Fjölbreytt söngskrá. Veglegt kaffihlaðborð að hætti kórsins.

Þær konur sem sungið hafa  með kórnum í gegnum tíðina eru sérstaklega boðnar velkomnar. Lillukórinn er 20 ára um þessar mundir, hann var stofnaður árið 1992 að frumkvæði Ingibjargar Pálsdóttur (Lillu) tónlistarkennara á Hvammstanga. Á þessu starfsári er kórinn skipaður 24 söngelskum konum, víðsvegar úr Húnaþingi vestra. Þær koma saman á vetrarkvöldum einu sinni í viku og syngja sér til gamans.

Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska. „Ég hylli þig Húnaþing“ sem kom út árið 1999 og  „Sendu mér sólskin“ árið 2004. Sá seinni var gefinn út til minningar um Pétur Aðalsteinsson frá Stóru Borg, öll lögin eru eftir hann og einnig ljóðin.

Fleiri fréttir