Listaflóð á vígaslóð um helgina

Menningarhátíðin Listaflóð á vígaslóð verður haldin dagana 10.-11. júlí með fjölbreyttri dagskrá. Kvöldvaka verður í Kakalaskála föstudagskvöldið 10. júlí kl. 20:30. Þar verður m.a. sýnd heimildarmyndin Orgelleikarinn: Maður í máli - Dagur í myndum eftir Ingþór Bergmann Þórhallsson.

Heimildarmyndin er um tónlistarmanninn Svein Arnar Sæmundsson frá Syðstu-Grund. Árið 2013 stóð hann á fertugu, átti 10 ára starfsafmæli við Akraneskirkju og var að ljúka sínu skeiði sem bæjarlistamaður Akraness. Einn bjartan dag í maí þetta ár, hélt hann upp á tímamótin og bauð bæjarbúum Akraness og velunnurum til sannkallaðrar tónlistarveislu. Í þessari stuttu heimildarmynd er Arnari fylgt eftir þennan dag.

Einnig mun Eyþór Árnason frá Uppsölum lesa upp úr ljóðabókum sínum og tónlistardagskrá verður í boði ásamt léttum veitingum. Þá verður vinnustofa Maríu opin en þess má geta að þar verður jafnframt haldinn markaður frá kl. 14-18 alla helgina.

Laugardaginn 11. júlí verður síðan mikið um dýrðir. Kl. 12:30 verður boðið upp á gönguferð með Sigurði Hansen á Haugsnesgrundir og kl. 14 hefst síðan fjölskylduhátíðin „Sunnan við garðinn hennar mömmu“ á Syðstu-Grund.

Fjölbreytt dagskrá hefst með tónleikum Jóns Þorsteins Reynissonar harmónikuleikara í stofunni á Grund. Sæbjörg Freyja Gísladóttir verður með ljósmyndasýningu sína „Alvöru karlmenn“ og boðið verður upp leiki fyrir börn og fullorðna, lifandi tónlist, handverk og hugverk. Auk þess verður flóamarkaður þar sem ýmislegt forvitnilegt verður hægt að fá.

Að sjálfsögðu verður Lilla á Grund klár með kaffiveitingar og ef veðurguðir leyfa, líkur dagskránni með harmónikudansleik. Áætluð dagskrárlok eru um kl. 17.

Aðstandendur listaflóðsins bjóða alla hjartanlega velkomna á viðburðina.

Fleiri fréttir