Listasetrið Bær tilnefnt til Eyrarrósarinnar
Listasetrið Bær á Höfðaströnd í Skagafirði er eitt tíu verkefna sem tilnefnd eru til Eyrarrósarinnar á tíu ára afmæli hennar. Metfjöldi umsókna er í ár til Eyrarrósarinnar, viðurkenningar til framúrskarandi menningarverkefna á starfssvæði Byggðastofnunar, en fjörutíu og sex fjölbreytt verkefni víða um land sóttu um.
Eyrarrósin beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Sú nýbreytni er nú tekin upp á tíu ára afmæli Eyrarrósarinnar að í stað þriggja tilnefndra verkefna, er nú birturEyrarrósarlistinn 2014, listi yfir tíu verkefni sem möguleika eiga á því að hljóta Eyrarrósina í ár.
Þann 23. janúar næstkomandi verður sagt frá því hvaða þrjú hljóta viðurkenningu. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en tvö verkefni hljóta 300.000 króna viðurkenningu og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
Eyrarrósarlistinn 2014 er:
Verksmiðjan Hjalteyri
Hammondhátíð á Djúpavogi
Áhöfnin á Húna II
Skrímslasetrið á Bíldudal
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri
Tækniminjasafn Austurlands
Reitir á Siglufirði
Listasetrið Bær í Skagafirði
Kómedíuleikhúsið
Þjóðahátíð Vesturlands
Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 15. febrúar næstkomandi í Menningarmiðstöðinni Skaftelli á Seyðisfirði. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin að vanda.