Litbrigði Samfélags í Sæluviku
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
24.04.2015
kl. 17.34
Myndlistarfélagið Sólon verður með myndlistarsýninguna Litbrigði Samfélags í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga 2015. Sýningin er samsýning félaga í Sólon, listamanna úr Skagafirði og nágrenni og er nú haldin 7. árið í röð í Sæluviku.
Sýningin opnar á morgun, laugardaginn 25. apríl, kl. 14:00 og stendur til sunnudagsins 3. maí. Opnunartímar verða kl. 16:00-19:00 virka daga og kl. 14:00-18:00 um helgar en föstudaginn 1. maí verður opið kl. 14:00-18:00.
„Hlökkum til að sjá sem allra flesta Skagfirðinga, nærsveitamenn og Sæluvikugesti. Verið hjartanlega velkomin í Gúttó,“ segir í fréttatilkynningu frá myndlistarfélaginu.