Lítill selkópur í fjörunni – Myndband
Þegar Baldur Sigurðsson á Sauðárkróki var á ferðinni fyrir skömmu með tamningahross sitt í fjörunni neðan bæjarins varð hann var við lítinn selkóp sem þar lá. Selurinn var agnarsmár og móðurlaus og eflaust einmana en enginn veit hvaða ferðalag var á honum. Alla vega fór hann aftur í sjóinn og lítið til hans spurt síðan.
Eins og myndbandið sýnir er þarna um lítið grey að ræða og vonandi hefur hann fundið mömmu sína einhvers staðar sem hefur gefið honum góðan mjólkursopa.
https://www.youtube.com/watch?v=GlT8lF-ndSs