Litlu munaði í Útsvarinu

Það munaði mjóu í viðureign Skagfirska kvennaliðsins gegn Eyjapeyjum í Útsvarinu í kvöld en aðeins eitt stig skildu liðin að í lokin. Skagfirðingarnir áttu erfitt uppdráttar framan af keppni en sigldu æ nær er á leið.

 

Þær Guðrún Helgadóttir, Guðrún Rögnvaldardóttir og Erla Björt Björnsdóttir virkuðu heldur óöruggar í upphafi gegn reynsluboltunum úr Eyjum sem tóku strax forystu. Þegar síðasti hluti keppninnar hófst munaði 17 stigum á liðunum sem stúlkurnar söxuðu jafnt og þétt á enda jókst þeim sjálfstraustið og þegar yfir lauk munaði aðeins einu stigi á liðunum 70 – 69. Glæsilega gert hjá þeim. Skagafjörður er annað stigahæsta liðið eftir rimmuna og á góða möguleika á að komast áfram í næstu umferð sem eitt af fjórum stigahæstu tapliðunum.

Fleiri fréttir