Ljósakrossar í Sauðárkrókskirkjugarði
Fyrir jólin er góður og fallegur siður að tendra ljós á leiðum ástvina. Á þessari aðventu mun Steinn Ástvaldsson aðstoða fólk við uppsetningu ljósakrossa í kirkjugarðinum á Sauðárkróki. Hann verður í garðinum dagana 1.-6. desember kl.13-15 og er fólk beðið að koma með sína krossa á þeim tímum. Hægt er ná í Stein í síma 891 9174.
Gjald fyrir hvern kross verður 1000 krónur og tekið við greiðslum á staðnum, en ekki eru tekin greiðslukort. Einnig verður hægt að leggja inn á reikning í Arionbanka (0310-26-478, kt.560169-7659). Nauðsynlegt er að taka fram í skýringu fyrir hvern er lagt inn.