Ljósmyndasýning Önnu Maríu í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju

Hin skagfirskættaða Anna María Sigurjónsdóttir ljósmyndari opnaði sýningu fyrir skömmu í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Myndir sýningarinnar eru af konum við hin ýmsu störf en sýningin er tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands.

Konur eru að sinna allskonar störfum í dag, jafnt á við karlmenn, en samt er launamismunur milli kynja enn sá sem hann er, segir Anna María m.a. í kynningu sinni. Anna María er dóttir Sigurjóns og Sigríðar áður ábúenda á Dýrfinnustöðum í Blönduhlíð.

Skagfirðingar eru hvattir til að renna yfir Öxnadalsheiðina og kíkja á sýninguna en hún stendur yfir næstu tvo mánuði og er opin á opnunartíma Safnaðarheimilisins.

Fleiri fréttir