Lokað fyrir heitt og kalt vatn á Hvammstanga í dag

Kalda vatns laust verður á öllu veitusvæði vatnsveitu Hvammstanga frá kl. 17:00 í dag. Mynd: Pexels.com
Kalda vatns laust verður á öllu veitusvæði vatnsveitu Hvammstanga frá kl. 17:00 í dag. Mynd: Pexels.com

Veitusvið Húnaþings vestra hefur sent út áríðandið tilkynningu á vef sveitarfélagsins þar sem kemur fram að vegna tengingar á hita- og vatnsveitu í nýtt hverfi við Lindarveg verður lokað fyrir heitt vatn í dag, fimmtudag, frá klukkan 17:00 og mun lokunin standa yfir í um 5-6 tíma. Jafnframt er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Í tilkynningunni segir að heitavatnslaust verði á eftirfarandi stöðum: Nestúni, Grundartúni, Norðurbraut, að undanskildu Hótel Hvammstanga, Bakkatúni, Fífusundi, Kirkjuvegi, öllu Melahverfi og á svæðinu norðan Hvammstanga.

Þá verður einnig lokað fyrir kalt vatn í dag klukkan 17:00 vegna færslu á stofnlögn við vatnstank fyrir Hvammstanga og mun lokunin standa yfir í 5-6 tíma. Því verður kaldavatnslaust á öllu veitusvæði vatnsveitu Hvammstanga.

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 
  2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir