Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
feykir.is
Skagafjörður
19.03.2014
kl. 14.33
Lokahátíð upplestrarkeppni 7. bekkja grunnskólanna í Skagafirði verður haldin á sal bóknámshúss Fjölbrautaskólans kl. 17 í dag, miðvikudaginn 19.mars. Á hátíðinni munu nemendur sem valdir hafa verið úr skólum byggðarlagsins lesa brot úr skáldverki og ljóð.
Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana og veitt verða verðlaun. Nemendur frá Tónlistarskóla Skagafjarðar leika á hljóðfæri. Í tilkynningu frá undirbúningsnefnd segir að allir séu velkomnir og aðgangur sé ókeypis.