Lokahóf í körfunni í kvöld
Lokahóf körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldið á Mælifelli í kvöld. Húsið opnar kl 19:30. Boðið verður upp á mat, skemmtiatriði og verðlaunaafhendingu. Stefán Jónsson stýrir veislunni en að henni lokinni verður dansleikur. Miðaverð er 2800.-kr.
Á mánudaginn var uppskeruhátíð yngri flokka haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þar fengu iðkendur afhentar viðurkenningar fyrir frammistöðu vetrarins og boðið var upp á pylsur og svala.
Meðfylgjandi myndir tók Einar Friðfinnur Alfreðsson við það tækifæri.
.