Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar 1. apríl

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar fer fram nk. föstudag.
Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar fer fram nk. föstudag.

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar fer fram í Þytsheimum á Hvammstanga nk. föstudag, þann 1. apríl. Keppt verður í tölt og skeið. „Hvetjum alla til að mæta á lokamótið í ár og hvetja keppendur til dáða, fá sér grillkjöt á flottu verði hjá frábæru konunum í kaffinefndinni og skola því niður með góðu glasi,“ segir á vef hestamannafélagsins Þyts. 

Á vef Þyts segir að keppt verður í tölti T3 í öllum flokkum (tekið tillit til þess að hægja þarf í beygjum á hraða töltinu). Forkeppni í T3 (2 inná í einu): hægt tölt snúa við - hraðabreytingar - hratt tölt. Keppt verður í opnum flokki í skeiði og skráningargjaldið er 1.000 kr. 

Tilkynnt verður á fimmtudag hvort aðstæður leyfa skeið. En fyrirhugað er að hafa skeiðið úti á skeiðbrautinni.

Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri.

 

Fleiri fréttir