Lokasýning Óperudraugsins í Hofi, Akureyri

Núna hefur Óperudraugurinn, einn vinsælasti söngleikur samtímans, verið sýndur tvisvar sinnum fyrir fullu húsi í Skagafirði og í Reykjavík. Sýningin hefur fengið frábær viðbrögð áhorfenda sem hafa lýst hrifningu sinni á leikgerðinni sem er ný í uppsetningu Guðrúnar Ásmundsdóttur og verkefninu í heild sinni og þeim sem taka þátt í því. Um er að ræða viðamikla sýningu þar sem að 45 manns koma fram.

Þriðja sýningin og jafnframt lokasýningin verður í Hamraborg í Hofi á Akureyri sunnudaginn 15. Maí kl. 20:00. Ekki láta frábæra sýningu framhjá ykkur fara, gerið ykkur menningarferð til Akureyrar og skoðið glæsilegt menningarhús / Hof um leið.

Miðasala er á menningarhus.is

Fleiri fréttir