Lóuþrælar fagna vori
Karlakórinn Lóuþrælar heldur vortónleika sína í Félagsheimilinu á Hvammstanga í kvöld, síðasta vetrardag, og hefjast tónleikarnir kl. 21:00.
Dagskráin verður fjölbreytt að vanda. Söngstjóri er Daníel Geir Sigurðsson og undirleik annast þær Elinborg Sigurgeirsdóttir á píanó og Ellinore Andersson sem leikur á fiðlu. Einsöngvarar með kórnum eru Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson.
Kaffi, kökur og söngur í boði fyrir kr. 3.000. Lóuþrælar taka fram að enginn posi er á staðnum.