Lóuþrælar heimsækja Færeyjar
Karlakórinn Lóuþrælar eru í söngferðalagi á Færeyjum þessa dagana en samkvæmt heimasíðu karlakórsins hefur mikil stemmning og ánægja einkennt ferðalagið.
Margt hefur dregið á daga kórsins í ferðinni en hann hefur haldið tónleika víða um eyjarnar og nokkrir kórfélagar fóru í viðtal hjá morgunþætti í færeyska útvarpsins.
Lóuþrælar hafa einnig notað tækifærið til að kynnast landi og þjóð; farið í skoðunarferðir og notið fjölbreyttrar dagskrár Ólavsvöku og gleðigöngu þar í landi, en þar hittu kórfélagar m.a. Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur, Eyvör Pálsdóttur og Íslenska hinseginkórinn.
Hér er myndband frá því þegar kórinn tók lagið í Kirkjubøur í Færeyjum en samkvæmt heimasíðu Lóuþræla er þar er kirkja sem var reist árið 1111. Hér má lesa nánar um söngferðalag kórsins,
http://youtu.be/5qk0I_82GMQ