Lóuþrælar með tónleika á morgun

Miðvikudagskvöldið 18. apríl ætlar karlakórinn Lóuþrælar að fagna vorkomu með því að halda tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Kaffi og kökuveitingar verða á boðstólnum og eins og venjulega á vorfögnuði kórsins.

Komið og njótið stundarinnar með kórnum og fögnum komu vorsins, segir í tilkynningu frá kórfélögum en tónleikarnir hefjast kl 21:00. Miðaverð er 2.500,- en enginn posi verður á staðnum.

Fleiri fréttir