Lukka með Pétur Pan í flutningi 10. bekkjar Árskóla
Nemendur í 10. bekk Árskóla frumsýndu fyrradag leikritið Pétur Pan eftir J.M. Barrie í leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar. Sýningin hefur vakið mikla lukku, leikur og öll umgjörð er sögð vera til fyrirmyndar. Sýningar verða fram á sunnudag í Bifröst á Sauðárkróki.
Leikritið fjallar um þrjú systkini. Eitt kvöld kemur strákur inn til þeirra og flýgur með þau til Hvergilands. Þar hitta þau sjóræningja, hafmeyjur, álfa, indijána og týndu drengina og lenda í alls konar ævintýrum.
Sýningar í Bifröst sem hér segir:
- Föstudagur 20. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00)
- Laugardagur 21. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12.00-17:00)
- Sunnudagur 22. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12:00-17:00)
Miðaverð er fyrir 5 ára og yngri kr. 500, grunnskólanemendur kr. 1000 og fullorðnir kr. 1500. Miðapantanir í síma 453-5216, vakin er athyglin á því að ekki er tekið við greiðslukortum.
Meðfylgjandi myndir eru fengnar frá Sauðárkrókur-Bærinn undir Nöfunum á facebook.