Lundarannsóknir koma vel út í Skagafirði
Á heimasíðu náttúrustofu Norðurlands vestra segir frá því að rannsóknarhópur á vegum Náttúrustofu Suðurlands kom við hér í Skagafirði nú á dögunum á hringferð sinni um landið í lunda rannsóknum. Erpur Snær Hansen sem fer fyrir hópnum er að kanna varpárangur lundans í seinni ferð sinnu um landið í sumar. Starfsmaður náttúrustofunnar slóst í för með hópnum og var farið í Lundey, Drangey og Málmey. "Páll Stefánsson flutti okkur út í Lundey en Viggó Jónsson sá um að flytja okkur í Drangey og Málmey. Í ferðinni veru gerðar mælingar á holufjölda í lundavörpum og einnig voru notaðar holumyndavélar til að skoða varpárangur lundans. Frumniðurstöður benda til þess að lundinn er í góðum málum hér í Skagafirði. Mikið um unga í holum og allt svart af lunda í Drangey. Ekki spillti fyrir ánægjunni að sjá að lundinn var með fulla gogga af æti. Þetta eru virkilega ánægjulega niðurstöður eftir vægast sagt dapran varpárangur hjá lundanum undanfarin ár."