Lúsíuhátíð og Jólabingó á Sauðárkróki

Lúsíurnar syngja í Ráðhúsi Skagafjarðar í fyrra. Ljósm./Skagafjordur.is
Lúsíurnar syngja í Ráðhúsi Skagafjarðar í fyrra. Ljósm./Skagafjordur.is

Lúsíuhátíð 6. bekkjar Árskóla er í dag fimmtudaginn 10. desember. Lúsíurnar eru á ferðinni um Krókinn og  syngja á ýmsum stöðum, m.a. Leikskólanum Ársölum, Dvalarheimilinu kl. 14 og Skagfirðingabúð kl. 15:30. Hátíðin endar í matsal Árskóla kl. 17 í dag með sannkölluðum Lúsíusöng og eru allir velkomnir í skólann.

Foreldrakaffi Árvistar er milli kl. 14 og 16 þar sem boðið er upp á piparkökur með kaffinu og í Ársölum verður jólakakóhús hjá krökkunum á yngra stigi með kósýheitum, smákökum og jólatónlist kl. 9:30.

10. bekkingar Árskóla eru með jólabingó kl. 20 í kvöld og er fjöldri góðra vinninga í boði.

 

Fleiri fréttir