Maður kærður fyrir að taka myndir í kvennaklefa sundlaugar

Lögð hefur verið fram kæra á hendur fyrrum starfsmanni sundlaugarinnar í Varmahlíð þar sem hann er sakaður um að hafa tekið myndir á falinn símann sinn inn í kvennaklefa. Manninum hefur verið vikið úr starfi og málið rannsakað af Rannsóknarlögreglunni á Akureyri.http://www.feykir.is/kualubbi/wp-includes/js/tinymce/plugins/wordpress/img/trans.gif

 

Málið hefur vakið hörð viðbrögð íbúa svæðisins m.a. vegna þess að það var ekki kært strax til lögreglu þar sem  reynt var að leysa það innanhúss í fyrstu og virðist sem þagga hafi átt það niður.  Íbúar sættu sig ekki við þau málalok og þrýstu á að málið yrði kært til lögreglu. Samkvæmt heimildum Feykis bendir allt til þess að hinum meintu myndum hafi verið eytt.


Fleiri fréttir