Maður marsmánaðar hjá Hard Wok

Eins og sagt var frá í Feyki í febrúar hefur veitingarstaðurinn Hard Wok á Sauðárkróki tekið upp þann sið að velja mann mánaðarins. Að þessu sinni var það Borgþór Bragi Borgarsson á Hofsvöllum í Skagafirði sem hlýtur þessa nafnbót frá Hard wok og fær því fría 5 rétta máltíð fyrir tvo að launum.

Þessum leik hjá Hard wok fylgir lítil getraun á fésbókarsíðu staðarins, þar sem vinum gefst tækifæri til að giska á um hvern ræðir. Að þessu sinni var getraunin á þessa leið:

„Hann er bóndi, alltaf kátur og hress og fæst við að búa til líf í aukaverkum, gengur hann af þeim sökum í sérhannaðri peysu, en á hana vantar aðra ermina. Svaraðu hér fyrir neðan ef þig grunar hver þessi ,söngglaði, "einermdi" og hláturmildi bóndi er.“

Fleiri fréttir