Magnaður sigur í Lengjubikarnum

Strákarnir í meistaraflokki Tindastóls vann magnaðan 5-4 sigur gegn Víði Í lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina en leikið var á Akranesi.  Ingvi Hrannar Ómarsson og Fannar Freyr Gíslason skoruðu báðir tvö mörk fyrir Tindastól og Óskar Smári skoraði eitt.

„Eins og úrslit leiksins gefa til kynna var líf og fjör á vellinum frá upphafi til enda og svo fór að Tindstóll skoraði sigurmarkið rétt áður en flautað var til leiksloka,“ segir í fréttatilkynningu.

Tindastóll hefur leikið tvo leiki í þessu móti og er með fjögur stig.

Fleiri fréttir