Magnús Ásgeir Elíasson gefur út tíu laga plötu

Plötuumslagið sýnir vel hvar áhugi lagahöfundar liggur, hestar og músík.
Plötuumslagið sýnir vel hvar áhugi lagahöfundar liggur, hestar og músík.

Magnús Ásgeir Elíasson bóndi á Stóru-Ásgeirsá í Vestur Húnavatnssýslu, situr alla jafna ekki auðum höndum en nýlega gaf hann út tíu laga disk sem kominn er á Spotify og ber hið vonglaða nafn Senn kemur vor. Magnús býr með sauðfé, hross og nokkrar geitur, rekur ferðaþjónustu, hestaleigu auk þess að halda úti pöbb, Mjólkurhúsið.

„Það er opið þegar ég er heima þannig að það er eiginlega alltaf opið nema núna því ég skutlaðist í að mála eina sundlaug, bara svona til að hafa eitthvað að gera,“ segir Magnús en eins og margir hafa reynt eru ekki margir túristar um þessar mundir. Sundlaugin sem Magnús skutlaðist í að mála er á Reykjum í Hrútafirði.

En platan er umræðuefnið og Magnús spurður hvernig hún hljómi. „Þetta er alveg þrælgóð plata m.a. lagið Stormurinn sem fjallar um veðrið í vetur þegar hross fórust í desemberveðrinu skelfilega. Það voru til nokkrar myndir sem ég náði og ég fékk hjá nágranna mínum svo ég gat sagt smá sögu,“ segir hann og vísar til þess að lagið er komið á YouTube með myndum frá þessum örlagatíma. Á plötunni er lagið Stormurinn, sem vakið hefur mikla athygli, bæði með íslenskum texta Einars Georgs Einarssonar, (föður Ásgeirs Trausta), og enskum texta Hrafnhildar Ýrar Víglundsdóttur, (sjá neðar á síðunni).

Magnús á öll lögin á plötunni og þrjá texta, en segist ekki vera sérlega djúpur í textasmíðum þannig að hann fékk Einar Georg til að semja á nokkra texta fyrir sig en auk hans eiga Sigurður Sólmundarson, (bróðir Sóla Hólm skemmtikrafts) og Hrafnhildur Ýr, sveitungi Magnúsar, sinn textann hvort, þannig að það koma nokkrir að þessu verkefni. „Ég var með einhverja hugmynd að texta og og mér fannst hann rakinn maður í þetta verkefni, að semja ástartexta, vegna þess að hann er miklu meira skólaður í ástinni heldur en ég,“ segir Magnús um vin sinn Sigurð og hlær.

Platan er tekin upp í Stúdíó Paradís og undirleikarar og upptökuliðið ekki af verri endanum. Þar má fyrstan nefna bassaleikarann Jóhann Ásmundsson, Sigurgeir Sigmundsson sem leikur á gítar og Ásmundur Jóhannsson á trommur.

Mesta tilfinningin er tengd Storminum
Senn kemur vor er önnur plata Magnúsar en sú fyrri Legg af stað kom út árið 2014. Til stendur að gefa hana út á geisladiski og vínylplötu. „Það er allt í vinnslu hjá mér núna. Það er verið að klára umslagið og ætla ég að gefa þetta út á disk og vínyl, vonandi núna í september. Útgáfutónleikana er ekki hægt að negla eins og staðan er í þjóðfélaginu í dag. Því ég hef sterka trú á því að þegar að verður slegið í þá situr fólk ekki á rassinum.“

Það er greinilegt að þörfin fyrir að skapa er Magnúsi eiginlegt en hann segist samt ekki setja sig í neinar stellingar þegar hann semur lögin. Þetta vill koma af sjálfu sér þegar hann grípur gítarinn og einhver laglína verður til. Gestir Magnúsar, þá sérstaklega á Mjólkurbarnum, fá oft að njóta spilamennsku hans en hann gerir þó ekki út neina hljómsveit. Ég hef verið að taka eitt og eitt gigg, árshátíðir og svoleiðis, ekki mikið þó, en aldrei að vita nema maður geri meira af því. Þetta er svo ægilega gaman. Svo er með mér einn, sem syngur eitt lagið á plötunni, Kristinn Rúnar, nágranni minn í Dæli. Við spilum oft saman, ég á kassagítar og hann á kassatrommu.“

En hvert skyldi vera uppáhaldslagið á plötunni? „Þetta er erfið spurning vegna þess að þau eru öll bara mjög góð. En mesta tilfinningin er tengd Storminum en Gæfan finnst mér gott lag, fíla það alveg í botn og Ásdís og Hamingja.“

Áður birst í 32. tbl. Feykis 2020

 

 

Fleiri fréttir