Magnús Ingi hlaut viðurkenningu í eldvarnagetraun

Hreiðar Steinþórsson slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar afhendir Magnúsi Inga viðurkenningu fyrir þátttöku í Eldvarnagetrauninni. Ljósm./VG.
Hreiðar Steinþórsson slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar afhendir Magnúsi Inga viðurkenningu fyrir þátttöku í Eldvarnagetrauninni. Ljósm./VG.

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í grunnskólum landsins í nóvember sl. þar sem nemendur í 3. bekk fengu m.a. fræðslu um eldvarnir. Tóku þeir þátt í eldvarnagetraun slökkviálfanna Loga og Glóðar og er nú búið að draga úr réttum lausnum.

Einn nemandi í Skagafirði var dreginn út og fékk viðurkenningu. Sá heppni heitir Magnús Ingi Guðjónsson og er nemandi í Árskóla á Sauðárkróki.

„Magnús Ingi var með öll svör rétt eins og reyndar allir í bekknum hans en hann var svo heppinn að vera dreginn út,“ segir í fréttatilkynningu.  

 

Fleiri fréttir