Málmey og Klakkur á makrílveiðum
feykir.is
Skagafjörður
14.08.2015
kl. 14.40
Á heimasíðu Skagafjarðarhafna er sagt frá því að bæði Málmey og Klakkur hafi verið á makrílveiðum í sumar. Klakkur landaði 80 tonnum 20. júlí og svipuðu magni í þessari viku.
Málmey landaði 168 tonnum 21. júlí, og 169 tonnum 9. ágúst. Málmey var svo til löndunar í gærmorgun með 120 tonn. Flutningaskip er svo væntanlegt í dag með frosna rækju fyrir Dögun. Það er því heilmikið um að vera í Sauðárkrókshöfn þessa dagana.