Málstofa Hólaskóla og Háskólans í Tromsø

Sameiginleg málstofa fræðafólks við ferðamáladeild Háskólans á Hólum og Háskólann í Tromsø fór fram á Hólum í Hjaltadal dagana 2. – 3. júní. Á heimasíðu Hólaskóla segir að þemað hafi verið Hundar, hestar og ferðafólk en hópurinn frá Noregi heimsótti jafnframt fyrirtæki og ferðaþjónustuaðila í héraði til að kynna sér nánar ýmsar hliðar hestaferðaþjónustu.

Í málstofunni kom fram að í Finnmörku hafa fræðimenn verið að skoða þróun ferðaþjónustu í tengslum við Finnmarksløypet, eina stærsta keppni í hundasleðaakstri í heiminum, sem fagnar 30 ára afmæli á árinu. Viðburðurinn hefur getið af sér margvísleg verkefni og rekstur.

Á Háskólanum á Hólum hefur athyglin fremur beinst að hestaferðaþjónustu sem sögð er mikilvæg sérgrein innan íslenskrar ferðaþjónustu. „Íslenski hesturinn á sér tryggan hóp gesta erlendra sem innlendra sem sækja heim viðburði eins og Landsmót, auk þess að taka þátt í hestaferðum,“ segir á vef Hólaskóla.

Að lokum kynninga á rannsóknarverkefnum var rætt um nánara rannsóknasamstarf, þá ekki einskorðað við húsdýrin og ferðamennsku/ferðaþjónustu heldur einnig um þróun áfangastaða og atvinnugreinarinnar á jaðarsvæðum í norðri.

Fleiri fréttir