Máltíð í skóladagvistun ódýrust í Skagafirði

 Ódýrasta máltíðin sem boðið er upp á í skóladagvistunum á Íslandi er í Skagafirði, þar sem máltíðin kostar 231 kr. en sú dýrasta í Garðabæ á 428 kr. Verðmunurinn er 197 kr. eða 85%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt verðlagseftirlits ASÍ á gjaldtöku í grunnskólum í fjölmennustu sveitarfélögunum landsins.
Þegar skoðað er mánaðargjald fyrir skóladagvist með hressingu mat kemur einnig í ljós að kostnaður við hvert barn er lægstur í Skagafirði, kr. 17.871. Hæsta verðið fyrir þá þjónustu er hinsvegar rúmlega 13.000 kr. hærra í Garðabæ. Verð á stakri hádegismáltíð hækkaði um 21 kr. eða 10%, í Skagafirði á milli áranna 2010 og 2011, en mánaðargjald fyrir vistun með hressingu og mat hækkaði um 4%. Mesta hækkun á sömu heildarþjónustu milli ára var hjá Reykjavíkurborg, 18% en mesta gjaldskrárhækkunin fyrir skóladagvist var í Kópavogi, 32%. Í nokkrum sveitarfélögum er gjaldskráin óbreytt milli ára.
Nánari upplýsingar um könnunina er að finna á vef ASI, www.asi.is

 

Í grunnskólum í Skagafirði greiða börn í fastri áskrift 270 krónur fyrir hverja máltíð en þau sem velja sér máltíðir eftir matseðli greiða 310 krónur fyrir máltíð. Verð á hverja máltíð hækka því á milli 3. og 4. bekkjar um 30 – 70 krónum meira.

Fleiri fréttir