Mannskapur óskast í Kardimommubæinn
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
24.08.2015
kl. 15.44
Leikfélag Sauðárkróks áformar að setja á fjalirnar Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner nú á haustdögum. Fyrsti fundur var haldinn í gærkvöldi og að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur var ágæt mæting á fundinn en þrátt fyrir það vantar þó nokkuð upp á að manna öll hlutverk og störf sem tengjast verkinu.
Hópurinn ætlar að hittast í gamla barnaskólanum í kvöld og eru allir sem vilja bætast í hópinn hvattir til að koma eða hafa samband við Sigurlaugu Dóru í síma 862 5771. Hún segir að til þess að hægt sé að fara af stað með svo viðamikið stykki þurfi liðsauka og vonast til að sjá eða heyra frá sem flestum.